úr tölvupósti dagsins :)

Nemandi úr Samvinnuskólanum á Bifröst sótti um vinnu sem afgreiðslumaður í Kaupfélagi úti á landi.

Þetta var svona alvöru kaupfélag þar sem hægt var að fá allt milli himins og jarðar. Kaupfélagsstjóranum leist vel á manninn þótt hann væri ungur og óreyndur og ákvað að taka hann til reynslu. Hann sagði manninum að mæta morguninn eftir og síðan myndi hann koma um kvöldið og athuga hvernig hefði gengið. Kvöldið eftir spurði hann unga manninn hvað hafði hann afgreitt marga viðskiptavini þennan fyrsta dag. 'Bara einn,' sagði drengurinn. Þetta fannst kaupfélagsstjóranum ekki mikið en spurði hvað hann hefði selt fyrir mikið.

'Fimm milljónir eitthundrað níutíu og þrjúþúsund' sagði afgreiðslumaðurinn við kaupfélagsstjórann.

'Hvað seldirðu honum eiginlega, spurði kaupfélagsstjórinn hissa?

'Jú, sjáðu til' sagði drengurinn, 'fyrst seldi ég honum lítinn öngul, síðan seldi ég honum miðlungsstóran öngul, þá stóran öngul, svo veiðistöng og síðan spurði ég hann hvar hann ætlaði að veiða. Hann sagðist ætla að veiða í vatninu og þá sagði ég honum að hann þyrfti bát og seldi honum plastbát með 40 hestafla utanborðsmótor. Þá sagði maðurinn að hann gæti aldrei flutt bátinn á Daihatsuinum sínum svo ég fór með hann í véladeildina og seldi honum nýjan Landróver. '

Nú var andlitið hálfdottið af kaupfélagsstjóranum og hann sagði: 'Maðurinn kemur hér inn til að kaupa einn lítinn öngul og þú selur honum bæði bát og bíl'!!

'Nei, nei,' sagði strákurinn.

'Hann kom hingað til að kaupa dömubindi handa konunni sinni og ég sagði við hann að fyrst að helgin væri hvort eð er ónýt hjá honum væri eins gott fyrir hann að fara að veiða!'

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Anna

Höfundur

Anna Þóra
Anna Þóra
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband