jólaseríu vesen

Svaðalega er hált. Þakka mínu sæl fyrir að komast á báðu löppunum heim. Hef reyndar sjaldan farið eins hægt yfir og aldrei verið svona lengi á leiðinni. Jæja allt hafðist þetta þó.  En nóg um það, nú er kennslu lokið þessa önnina, ef hægt er að tala um kennslu. Allavega þá er verkefnum lokið og næstu dagar fara í próflestur, mikið verður nú gott þegar 18. des kemur. Á þriðjudaginn sl. kláraði ég vettvangsnámið fyrir þessa önn og er bara sátt enda fékk ég voða góða um sögn frá æfingakennaranum. Nú var ég orðin þolinmóð og alls, finnst það alltaf frekar fyndið en verð ég seint talin þolinmóð manneskja Grin  Það tekur sig bara upp áður óþekkt þolinmæði þegar ég er komin innan um börn. En yfir í allt annað. Á þriðjudaginn ætlaði ég að henda upp jólaseríu enda komin snemma úr vettvanginum. Jæja ég næ í seríuna og sting í samband...hún virkar. Því næst tók ég límbandið sem helt henni saman, dreifði úr seríunni um allt og prófaði að stinga aftur í samband...vei, hún virkar. Því næst var sogskálum komið fyrir í alla glugga og eins ótrúlegt og það hljómar þá gekk bara nokkuð vel að koma þessu upp og engin pirringur við verkið. Þegar allt er komið á sinn stað sting ég enn og aftur í samband...og hún virkaði EKKI Devil  Og er ekki farin að virka enn. Næsta á dagskrá er sennilega að kaupa aðra seríu, og ég sem nenni ekki að versla Devil  Jæja ætli sé ekki best að kíkja í bók, næsta blogg verður ekki fyrr en eftir próf.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Anna

Höfundur

Anna Þóra
Anna Þóra
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband