31.5.2007 | 21:13
nei
Nei nei nei, ætlaði að horfa á uppáhaldsþáttinn minn en neinei, eithvað bull frá Alþingi...hver nennir að horfa á það??? Ekki ég, svo mikið er víst. Jæja horfi bara á Will og Grace í staðinn
En ætli það snjói meira þetta sumarið? Ja von að maður spyrji. Mér fannst nú hálf asnalegt að fara aftur í vetrafötin í síðustu viku en það er svona þegar maður vinnur á leikskóla, þá er eins gott að klæða sig eftir veðri. Svo rakst ég á hlussu randaflugu í gær og mitt fyrsta verk var að fara í búðina og kaupa bana. Já þessi kvikindi eiga ekki vona á góð ef þau voga sér að koma nálægt mér. Ég verð sko vopnuð bana Mér er alveg sama um kóngulær og pöddur en þegar kemur að þessum röndóttu kvikindum er ég fljót að láta mig hverfa. Alveg sama hvort það heitir randafluga eða geitungur. Jæja, farin að horfa á Will og Grace
Um bloggið
Anna
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 8680
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég ætlaði sko líka að horfa en nei nei bara Alþingi....ekkert smá pirrandi þegar það er verið að fella niður þætti
Ólöf , 1.6.2007 kl. 09:06
Vá hvað ég las vitlaust..hélt að þú hefðir rekist á randaflugu og farið í búð að kaupa HANA...úff sæki gleraugun..En ekki drepa litlu krúttlegu randafluguarnar..plíísss
Brynja Hjaltadóttir, 3.6.2007 kl. 23:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.